flugfréttir
Vietnam Airlines flýgur A350 fyrsta millilandaflugið
Vatnsbogi myndaður yfir nýju Airbus A350-900 vélina á flugvellinum í París sl. föstudag
Vietnam Airlines hefur flogið nýju Airbus A350 vélinni sitt fyrsta millilandaflug er vélin flaug frá Hanoi til Parísar þann 1. október.
Vélin fékk höfðinglegar móttökur með myndarlegum vatnsboga eins og tíðkast í fluginu þegar um tækifæri og tímamót er að ræða.
Claude Morel hjá franska utanríkisráðuneytinu óskaði víetnömum til hamingju með jómfrúarflugið en Víetnam
er mjög vinsælt land meðal Frakka en um 300 þúsund franskir ferðamenn ferðast til landsins árlega.
Vietnam Airlines hefur fengið tvær Airbus A350-900 vélar afhentar en félagið mun í október einnig fljúga vélunum frá Ho Chi Minh City
til Parísar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.