flugfréttir

Reiðir starfsmenn rifu forstjóra Air France úr jakkafötunum í mótmælum

- Til stóð að funda um niðurskurðaráætlun Air France

5. október 2015

|

Frétt skrifuð kl. 19:04

Til stóð að ræða „Plan B“ áætlun Air France þegar mótmælin brutust út í dag

Óeirðir brutust út þegar reiðir starfsmenn veittust að stjórnendum Air France í mótmælum fyrir framan höfuðstöðvar flugfélagsins í París í Frakklandi í dag.

Starfsmenn Air France brutu sér leið gegnum grindverk við aðalinngang höfuðstöðvanna og gengu í skrokk á tveimur stjórnendur flugfélagsins með þeim afleiðingum að annar þeirra var rifin úr skyrtunni sinni en til stóð að ræða niðurskurðaráætlunina sem félagið hefur gripið til.

Lögregla þurfti að skerast í leikinn og forða stjórnendunum tveimur af vettvangi en Xavier Broseta, starfsmannastjóri Air France, endaði ber að ofan eftir að skyrtan var rifinn af honum á meðan Frédéric Gagey, forstjóri Air France, endaði með rifin og tætt jakkaföt.

Mikill hiti var í starfsmönnum Air France í dag við
höfuðstöðvarnar í París

Starfsmönnum Air France er mjög heitt í hamsi þessa daganna eftir að viðræður félagsins við verkalýðsfélög fóru út um þúfur og stendur til að segja upp allt að 3.000 starfsmönnum fyrir árið 2017 auk þess sem taka á 14 þotur í langflugsflota félagsins úr umferð.

Einn mótmælandinn er starfsmaður hjá Air France Cargo en hann segir að flugfélagið eigi ekki að reyna að vera í samkeppni við flugfélögin fyrir botni Persaflóa sem ekki er hægt að keppa við.

Alan Vidalies, samgönguráðherra Frakklands, fordæmir mótmælin í dag en Air France ætlar að kæra þá starfsmenn sem beittu stjórnendunum tveimur líkamlegu ofbeldi.

„Við erum á hverjum degi að berjast fyrir Air France í von um að framtíð félagsins batni“, sagði Xiavier Broseta eftir að hann var komin í ný jakkaföt og með nýtt bindi.

Við Charles de Gaulle flugvöllinn í dag



Starfsmannastjórinn reynir að flýja gegnum mannþvöguna



Frédéric Gagey, forstjóri Air France



Myndband







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga