flugfréttir
Air France ætlar að endurskoða pöntun sína í Boeing 787-9
Tölvugerð mynd af Boeing 787-9 í litum Air France
Air France ætlar að endurskoða pöntun sína í Dreamliner-vélarnar sem félagið pantaði á sínum tíma í kjölfar þess niðurskurðar sem framundan er hjá félaginu.
Air France hefur ákveðið að fækka um 14 stórar þotur í langflugsflota sínum og ætlar félagið að hafa samband við Boeing
á næstunni og ræða við þá um möguleika að breyta pöntun sem félagið lagði inn í þrettán Boeing 787-9 vélar.
Dreamliner-vélarnar áttu að leysa af hólmi Airbus A340 vélarnar sem eru komnar til ára sinna en fyrsta Boeing 787-9 vélin
er væntanleg í flotann í nóvember á næsta ári.
Air France ætlar hinsvegar að taka Airbus A340 vélarnar fyrr úr umferð en áætlað var og verður þeim ekki skipt út fyrir nýjar
vélar eins og til stóð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.