flugfréttir

Berlín reynir að finna not fyrir nasistaflugstöðina á Tempelhof

- Hótel, skrifstofur fyrir sprotafyrirtæki eða flóttamannabúðir

6. október 2015

|

Frétt skrifuð kl. 15:57

Flugvellinum var lokað fyrir flugumferð árið 2008

Flugstöðin á gamla Tempelhof-flugvellinum í Berlín er sögufræg bygging sem endurspeglar sögu stríðsáranna og hefur að geyma mikilfenglegan arkitektúr sem kennd er við nasistastímann en flugvellinum var lokað árið 2008.

Vandamálið er hinsvegar að stjórnvöld í Berlín hafa ekki hugmynd um hvað best sé að gera við bygginguna sem reist var í seinni heimstyrjöldinni en flugvöllurinn sjálfur var byggður árið 1921.

Til stóð að jafna flugvöllinn við jörðu en í maí árið 2014 var kosið um örlög flugstöðvarinnar og höfnuðu Berlínarbúar tillögum um að rífa flugvöllinn en til stóð að reisa 4.700 nýjar íbúðir á flugvallarsvæðinu en um 65% voru því mótfallnir samkvæmt kosningunni.

Flugstöðin á Tempelhof-flugvellinum var smíðuð árið 1941

Yfirvöld sitja nú uppi með bygginguna sem er gríðarlega stór að flatarmáli en nasistar luku við framkvæmdir á flugstöðinni árið 1941 og var hún þá ein stærsta bygging í Evrópu.

Flugvallarsvæðið undir Tempelhof-flugvellinum er á stærð við Vatnsmýrina að meðtöldu háskólasvæðinu og Öskjuhlíðinni en það hefur nokkrum sinnum verið nýtt fyrir viðburði auk þess sem Berlínarbúar hafa legið í sólbaði á sumrin á flugbrautinni, hjólað, skokkað og notið útiverunnar.

Stjórnvöld í Berlín vita samt ekki hvernig best sé að nota flugstöðina fyrir starfsemi þar sem byggingin nýtist illa undir skrifstofur en deilt hefur verið um það hvort hægt sé að breyta flugskýlunum í húsnæði fyrir flóttamenn sem sækja um pólitískt hæli.

Berlínarbúar geta notið sumarsins á flugvellinum þar sem hann lokaði árið 2008

Hvað sem verður þá stendur til að viðhalda flugstöðinni í sinni upprunalegu mynd og jafnvel kemur til greina að leigja út lítil rými í einu til aðila sem hafa áhuga á atvinnuhúsnæði.

Samkvæmt aðila sem kunnugur er málinu er einnig verið að ræða um að skipta flugstöðinni upp í mörg rými og leigja þau út til sprotafyrirtækja í tækniiðnaðinum sem gætu unnið að starfsemi sinni innan um arkitektúr frá stríðsárunum.

„Hvað sem gerist þá verðum við að fá einhverja innkomu af byggingunni sem rennur til borgarinnar“, segir Stefan Evers hjá Berlínarborg.

Bílasýning á Tempelhof árið 2013



Ákveðið var í fyrra að Tempelhof-flugstöðin myndi ekki víkja fyrir 4.700 íbúðum















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga