flugfréttir
Farþegafjöldinn í september hjá Icelandair tvöfaldast á 4 árum
Boeing 757 vél Icelandair í flugtaki á flugvellinum í Zurich í Sviss
Um 317.000 farþegar flugu með Icelandair í september sem er 22 prósent aukning m.a.v. september í fyrra þegar 260.000 farþegar flugu með félaginu.
September í ár var því stærri mánuður en júlí fyrir 2 árum sem er annasamasti mánuðurinn hjá Icelandair og hjá öðrum flugfélögum.
17% fleiri flugsæti voru í boði í september og var sætanýtingin 83,1% en í sama mánuði árið 2014 var sætanýtingin
79,8% og hefur sætanýtingin því aldrei áður verið eins mikil í júlí.
Eins og sést hefur farþegum fjölgað mikið í september
Þá er um mesta farþegafjölda að ræða í sögu Icelandair í september og er því um tvöföldun að ræða á 4 árum frá september árið 2011.
Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 27 þúsund í september sem er aukning um 3% á milli ára. Sætanýting nam 77,8% og jókst um 2,7 prósentustig samanborið við september 2014. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 30% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 5% frá því á síðasta ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.