flugfréttir
Flugmaður hjá United missti meðvitund á leið til San Francisco
Sjúkralið við Dreamliner-vélina á flugvellinum í Alburquerque
Flugmaður hjá United Airlines missti meðvitund í stjórnklefanum á miðri leið frá Houston til San Francisco í dag í innanlandsflugi í Bandaríkjunum.
Vélin, sem er af gerðinni Boeing 787-8, var yfir Nýju-Mexíkó þegar aðstoðarflugmaðurinn missti
meðvitund og lenti flugstjórinn vélinni í Albuquerque.
United Airlines vinnur nú að því að koma farþegum á leiðarenda til San Francisco en flugmaðurinn vaknaði til meðvitundar áður en vélin lenti og gat hann gengið sjálfur frá borði.
Aðeins er sólarhringur síðan að 57 ára flugstjóri veikist um borð í Airbus A320 vél America Airlines
er vélin var á leið frá Phoenix til Boston í gær með afleiðingum að hann lést en hinn flugmaður
þeirrar vélar lenti henni í Syracuse í New York.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.