flugfréttir
Airbus afhendir fyrstu A350 vélina til Finnair
Finnair er fyrsta flugfélagið í Evrópu til að fá Airbus A350
Finnair hefur tekið við fyrstu Airbus A350 vélinni, fyrst allra flugfélaga í Evrópu, en félagið mun fljúga vélinni fyrsta áætlunarflugið síðar í vikunni.
Finnair mun fljúga vélinni til Amsterdam og til Oslóar frá Helsinki þann 9. október en þann 21. október
mun hún fljúga sitt fyrsta langflug til Shanghai.
Finnair hefur einungis Airbus vélar í flota sínum sem telur 45 þotur af gerðinni Airbus A319, A320, A330 og Airbus A340 auk þess sem flugfélagið Nordic Regional Airlines starfrækir ATR 72-500 vélar og Embraer E-170 og E-190 vélar.
Þrjár Airbus A350-900 vélar verða afhentar Finnair fyrir lok ársins, sjö vélar verða afhentar frá 2016
til 2017 og átta fyrir árið 2023.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.