flugfréttir

Beint flug til Egilsstaða frá London Gatwick hefst næsta vor

- Flogið frá maí fram í september

7. október 2015

|

Frétt skrifuð kl. 14:47

Frá Egilsstaðaflugvelli

Beint áætlunaflug milli Egilsstaða og Bretlands mun hefjast næsta vor og standa yfir allt sumarið fram á haust sem mun veita erlendum ferðamönnum beint aðgengi að nátturuperlum Austurlands.

Það er breska ferðaskrifstofan Discover The World sem stendur fyrir fluginu og verður flogið með Boeing 737-800 vél frá Gatwick-flugvelli til Egilsstaðaflugvallar.

Viðræður vegna flugsins á vegum ferðaskrifstofunnar bresku hafa staðir yfir í nokkurn tíma en nú hefur verið staðfest að flug til Egilsstaða mun hefjast.

Flugið hefst þann 28. maí 2016 og verður flogið tvisvar í viku, á miðvikudögum og laugardögum, fram til 24. september en ef góð reynsla verður með flugið er möguleiki á að flogið verður aftur sumarið 2017.

Á vefsíðu Discover The World er greint frá því að Egilsstaðir eru skammt frá helstu ferðamannastöðum á austurhluta landsins á borð við Mývatn, Seyðisfjörð, Breiðdalsvík, Djúpavogs, Dettifoss auk þess sem stutt er í Vatnajökul, stærsta jökul Evrópu og Höfn í Hornafirði.

Flugtíminn frá Gatwick-flugvelli til Egilsstaða verður sennilega svipaður og til Keflavíkur en fjarlægðin frá LGW til Keflavíkurflugvallar er 1.935 kílómetrar en til Egilsstaðaflugvallar er flugleiðin 1.768 kílómetrar eða um 167 kílómetrum styttri en hinsvegar losna ferðamenn við 7 klukkutíma ferðalag sé ekið til Austfjarða frá Keflavíkurflugvelli.

Skjáskot af vefsíðu Discover The World







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga