flugfréttir
Tvær nýjar Tecnam-kennsluvélar Flugskóla Íslands komnar í hús
- Nýjustu kennsluvélar landsins
TF-IFC og TF-IFD komu í gær með gámi en TF-IFA og TF-IFB var flogið til landsins í ágúst
Flugskóli Íslands er komin með allar nýju kennsluvélarnar í hús sem keyptar voru frá Tecnam á Ítalíu en í gær kom sending með tveimur síðustu vélunum sem eru af gerðinni Tecnam P2002 JF en tveimur vélum var flogið hingað til lands í ferjuflugi í byrjun ágúst.
Flugskóli Íslands er því komin með fimm Tecnam-kennsluvélar en síðustu vélarnar tvær, sem bera skráninguna TF-IFC og TF-IFD, eru
nú í samsetningu í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli og fara þær í kennslu eins fljótt og hægt er.
Flugskólinn segir að um frábærar vélar sé að ræða og munu nemendur njóta góðs af því að hafa fleiri vélar af þessari gerð í flugnámi
sínu.
Það var í maí í vor sem Flugskóli Íslands gerði samning við Tecnam-flugvélaframleiðandann um kaup á fjórum Tecnam P2002 JF vélum
sem eru tveggja sæta, eins hreyfils, lágvængja vél og falla í flokk svo kallaðra mjög léttra flugvéla.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.