flugfréttir
Myndband: Subbulegt flugtak í Síberíu
Antonov An-24 vélin er í flugtaki á flugvellinum í Bodaybo í Síberíu
Rússar kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að flugi og hafa þeir oft verið þekktir fyrir að fara sína eigin leiðir á ýmsum sviðum.
Alltumflug.is hefur meðal annars birt myndband sem sýnir rússneska flugvél nota flugtakið til að láta snjó og ís fjúka af vængjunum á meðan
önnur flugfélög hefðu látið afísa vélina.
Hér eru tvö myndbönd af Antonov An-24 skrúfuvél frá UTair í flugtaki á flugvellinum í Bodaybo-flugvellinum í Síberíu á flugbraut sem er á kafi í aur og slabbi en á loft hefst vélin samt sem áður.
Einn netverji sem skrifar ummæli undir myndbandið á YouTube.com segir „Ef þeir eru að reyna flýja þorp sem er fullt af uppvakningum þá myndi það kannski réttlæta
svona óöruggt flugtak“ en annar ummælandi segir að þetta sé daglegt brauð á þessum flugvelli
yfir veturinn.
Myndband 1:
Myndband 2: Sama flugtakið séð úr flugvélinni
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.