flugfréttir
Flugliðar Lufthansa boða enn og aftur til verkfalls
Þrír verkfallsdagar eru framundan næstu vikuna
Flugliðar hjá Lufthansa hafa boðað til frekari verkfallsaðgerða sem munu standa yfir í 3 daga og hefjast síðar í þessari viku.
Þeir flugliðar sem eru meðlimir í starfsmannafélaginu UFO segja að verkföll muni skella á næstkomandi
fimmtudag, föstudag auk þess sem fyrirhugað er verkfall á mánudaginn 30. nóvember.
Flugliðar segja að stjórn Lufthansa hafi enn ekki komið með ásættanlegt tilboð um launahækkun
og er vonast til þess að verkfallsaðgerðirnar á næstu dögum komi hreyfingu á hlutina.
UFO hefur ekki enn lýst því yfir hvaða flugvellir í Þýskalandi verði fyrir barðinu á verkfallinu en ef ekkert
mun þokast í viðræðum milli stjórnar Lufthansa og flugliða er hætta á að frekari verkföllum í desember.
Seinustu verkfallsaðgerðir hjá félaginu í október höfðu mjög slæm áhrif á félagið sem þurfti að aflýsa 4.700
flugferðum sem hafði áhrif á 550.000 farþega.
„Við erum mjög vonsvikin með að það sé enginn vilji hjá flugliðum til að setjast niður og ræða stöðuna í
raunhæfu samhengi“, segir Bettina Volkens, starfsmannastjóri Lufthansa, sem tekur það fram að núverandi
launafyrirkomulag sé nú þegar mjög dýrt í rekstri fyrir félagið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.