flugfréttir

Delta hættir við að taka úr umferð fjórtán Boeing 757 vélar

- Flugmenn höfnuðu samningi um að fá Boeing 737-900ER í staðinn

24. nóvember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 17:01

Boeing 757-200 vél Delta Air Lines

Delta Air Lines ætlar að halda lengur í Boeing 757 vélarnar og stendur til að hafa fjórtán Boeing 757-200 vélar lengur í flotanum sem var áætlað að taka úr umferð árið 2017.

Ástæðan er að hluta til sú að flugmenn félagsins höfnuðu tilboði um nýjar vélar af gerðinni Boeing 737-900ER en Delta hefur nú hætt við kaup á nokkrum slíkum vélum en margar slíkar vélar eru þó að bætast í flota Delta reglulega frá verksmiðjunum í Everett.

Boeing 757-200 vélarnar skipta Delta miklu máli þar sem þær geta flogið milli austurstrandar Bandaríkjanna og Evrópu með mikilli hagkvæmi.

Delta Air Lines hefur notað Boeing 757-200 vélar í flugi yfir Atlantshafið frá Bandaríkjunum til Evrópu

„Þessar fjórtán Boeing 757 vélar hafa nægan líftíma eftir og munu þær fá nýtt farþegarými á næstunni“, segir Michael Thomas, talsmaður hjá Delta Air Lines.

Delta Air Lines hefur enn 110 Boeing 757 vélar í sínum flota en meðalaldur þeirra eru 20 ár en vélunum hefur fækkað hægt og bítandi sl. ár.

Erfiðlega gengur að skipta Boeing 757 vélunum út

Erfiðlega hefur gengið fyrir flugfélögin að skipta út Boeing 757 vélunum þar sem vélarnar hafa reynst mjög góður vinnuhestur sem hefur náð að samhæfa hagkvæmni, allt að 8 klukkutíma flugþol og sæti fyrir farþegafjölda sem hentar á mjög mörgum flugleiðum.

„Boeing 757 er bara það góð vél að það hefur enginn náð að gera slíka vél aftur“, segir Bob Mann, fyrrum framkvæmdarstjóri American Airlines sem starfar nú sem ráðgjafi í New York.

American Airlines hefur einnig verið að halda lengur í Boeing 757 vélarnar sem félagið hefur notað aðallega í innanlandsfluginu í Bandaríkjunum en þeim hefur fækkað úr 106 vélum niður í 67 vélar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga