flugfréttir

Allur Fokker-flotinn hjá Austrian fær nýtt líf í Ástralíu

- Selja allar Fokker-vélarnar til Alliance Airlines í Brisbane

26. nóvember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 10:50

Fokker 100 vél Austrian Airlines á flugvellinum í Frankfurt í október í haust

Austrian Airlines hefur selt allar Fokker vélarnar sínar úr flotanum til Ástralíu þar sem félagið mun fá nýjar Embraer 195 vélar í þeirra stað.

Austrian Airlines hefur 21 vélar í flotanum af gerðinni Fokker, sex Fokker 70 og fimmtán Fokker 100 en kaupandinn sem mun fá vélarnar er ástralska flugfélagið Alliance Airlines í Brisbane sem hefur eingöngu Fokker-vélar í flotanum.

Kaupverðið á vélunum eru tæpir 2 milljarðar króna en hluti greiðslunnar verður hlutur í Alliance Aviation Services Limited sem Austrian Airlines mun eignast.

Alliance Aviation hefur fimmtán Fokker 100 vélar og átta Fokker 70 vélar og mun floti félagsins því tvöfaldast þegar austurrísku vélarnar bætast við en meðalaldur þeirra er um 21 ár.

Innan herbúða Austrian eru menn ánægðir með að hafa fundið kaupanda að Fokker-vélunum en margar vélar sem eru komnar á þennan aldur hafa endað sem brotajárn í flugvélakirkjugörðum en Fokker-vélarnar hafa þó verið eftirsóttar þar sem þær þykja ómissandi vinnuhestur.

Fokker 100 vél Alliance í lendingu í Perth







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga