flugfréttir
Tvö ný flugfélög í Sádí-Arabíu muni ekki hefja sig á loft fyrr en árið 2016
SaudiGulf átti að hefja flugrekstur í Sádí-Arabíu í nóvember
Einhver seinkun verður á því að tvö ný flugfélög í Sádí-Arabíu muni hefja áætlunarflug en SaudiGulf og Al Maha Airways ætluðu sér bæði að vera búin að hefja flugrekstur sl. 12 mánuðina.
Það var árið 2012 sem að yfirvöld í Sádí-Arabíu ákváðu að opna markaðinn í innanlandsfluginu fyrir erlend flugfélög og voru tvö flugfélög valin
til að hefja flugrekstur þar sem aðeins tvö flugfélög hafa einokað innanalandsmarkaðinn þar í landi, Saudi Arabian Airlines og Flynas.
Al Maha Airways er dótturfélag Qatar Airways en til stóð að félagið myndi hefja flug í Sádí-Arabíu í september 2014 en félagið hefur þegar
tekið við fjórum nýjum Airbus A320 vélum.
Öryggisfulltrúi samgöngumála í Sádí-Arabíu segir hinsvegar að félögin hafi ekki enn fengið flugrekstrarleyfi frá yfirvöldum vegna „tæknilegra
atriða“ sem á eftir að leysa.
SaudiGulf ætlaði sér að hefja flugrekstur í þessum mánuði en allt lítur út fyrir að bæði flugfélögin muni ekki hefja flug fyrr en á næsta ári.
Airbus A320 vél SaudiGulf
Airbus A320 vél Al Maha Airways
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.