flugfréttir
Farþegar fara í hóplögsókn gegn Boeing eftir eld í hreyfli í Las Vegas
Boeing 777 vélin eftir að eldurinn kom upp á flugbrautinni í Las Vegas með Luxorinn í baksýn
Farþegar sem voru um borð í Boeing 777 farþegaþotu British Airways er eldur kom upp í hreyfli skömmu fyrir flugtak á McCarran-flugvellinum í Las Vegas þann 8. september sl. hafa höfðað mál gegn Boeing og hreyflaframleiðandanum, General Electric.
Lögfræðistofan Steward Laws í London tilkynnti í gær að búið væri að höfða mál gegn hreyflaframleiðandanum og gegn
framleiðanda vélarinnar fyrir hönd 65 af þeim farþegum sem voru um borð en farþegarnir eru sagðir hafa orðið fyrir miklu andlegu og líkamlegu áfalli eftir atvikið.
Vélin var á leið til London Gatwick þegar eldur kom upp í vinstri hreyfli vélarinnar og var vélin rýmd á flugvellinum þar sem farþega fóru
út gegnum neyðarrennibrautir.
James Healy-Pratt, lögfræðingur, segir að farþegarnir séu ekki að sakast við British Airways þar sem þeir segja að áhöfnin hafi staðið
sig mjög vel og unnið fagmannlegt verk við að tryggja öryggi farþega.
Saka GE Aviation um að hafa ekki brugðist við tilmælum FAA
Frumrannsókn á vegum samgönguöryggisnefndar Bandaríkjanna (NTSB) leiddi í ljós að málmþreyta hefði komið upp í skafti sem tengir saman
hverflahjól í háþrýstiþjöppurými hreyfilsins og sem olli sprengingu í hreyflinum en brot úr honum fundust á flugbrautinni.
Farþegar yfirgefa vélina
Einnig kom í ljós að vatnsúðunarkerfi í hreyflinum fór ekki í gang sem er ætlað að slökkva eld í hreyfli og hafa sérfræðingar spurt sig
að því hvers vegna sá búnaður virkaði ekki.
Í málsgögnum frá Steward Laws kemur fram að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) vöruðu við mögulegum sprungum í skafti í háþrýstiþjöppurými
á þessari gerð hreyfla árið 2011 en GE Aviation segir að ekki hafi verið gengist undir þeim tilmælum og farið fram á skoðun meðal flugfélaganna
þar sem umræddur hreyfill er ekki af sömu gerð og tilmælin beindust að.
GE90 hreyflarnir með þeim öruggustu í heimi
Rick Kennedy, talsmaður GE Aviation, segir að fyrirtækið hafi ekki séð málsgögnin varðandi lögsóknina en tók það fram að búið sé að skoða 38
hreyfla sem innihalda sömu íhluti og sá hreyfill sem sprakk á vél British Airways en GE Aviation segir að atvikið í Las Vegas hafi verið fyrsta
sinnar tegundar.
„GE90 hreyflarnir eru með þeim áreiðanlegustu og öruggustu hreyflum sem til eru í sögu flugsins og við fylgjumst stanslaust með frammistöðu
þeirra 2.000 hreyfla sem eru í notkun af þessari gerð og það er ekki vitað um neina hættu sem þeir kunna að skapa“, segir Kennedy.
Flestir þeirra farþega sem taka þátt í hóplögsókninni eru Bretar en einnig eru sex Ameríkanar og nokkrir farþegar frá Írlandi en lögfræðingurinn
á von á því hópurinn sem tekur þátt í lögsókninni eigi eftir að fara yfir 100 manns.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.