flugfréttir
Jólasveinn stal þyrlu í Brasilíu
Jólasveinn í Robinson R44 þyrlu í Maryland í Bandaríkjunum
Lögregla í Brasilíu leitar nú að jólasveini sem er sakaður um að hafa stolið þyrlu í borginni Sao Paulo og er sagt að hann hafi tekið þyrluflugmanninn í gíslingu.
Vondi jólasveinninn leigði sér þyrluferð frá þyrluþjónustu á Campo Marte flugvellinum sl. föstudag í tengslum við uppákomu vegna
svarta föstudagsins en í ljós kom að sveinki hafði eitthvað allt annað í huga.
Á meðan á fluginu stóð neyddi jólasveinninn þyrluflugmanninn til að lenda á afskektum bóndabæ til að taka upp annan aðila sem var með honum
í slagtogi og skyldu þeir þyrluflugmanninn eftir og flugu á brott en flugmaðurinn lét lögregluyfirvöld vita.
Lögreglan vinnur nú að því að reyna hafa hendur í hári jólaveinsins og þyrlunnar sem er af gerðinni Robinson R44.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.