flugfréttir

Ákvörðun um þriðju flugbrautina á Heathrow verður tekin í vikunni

30. nóvember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 17:46

Frá Heathrow-flugvelli

Spurningin hvort Heathrow-flugvöllur verði stækkaður með þriðju flugbrautinni eður ei verður svara á næstu dögum en David Cameron, forsetisráðherra Bretlands, mun í vikunni taka ákvörðun um hvort að grænt ljós verði gefið fyrir framkvæmdunum.

Allt bendir til þess að þriðja flugbrautin fái grænt ljós en ef svo fer þá verður þá verða gerðar miklar kröfur varðandi takmarkanir á hávaða gagnvart íbúum sem búa nálægt flugvellinum.

1. júlí sl. sumar gaf sérstök flugvallarnefnd frá sér lokaskýrslu með niðurstöðum með mati þar sem þriðja flugbrautin á Heathrow var valin hentugasti kosturinn til að leysa flugvallarvanda Breta.

Heathrow-flugvöllur er löngu orðin sprungin og er völlurinn einn af þeim fáu í Evrópu sem sér engann vöxt á fjölda flugtaka og lendinga þar sem hann er nýttur frá morgni fram á kvöld en flug um völlinn að næturlagi er bannað.

Gert er ráð fyrir því að þriðja flugbrautin muni koma til með að kosta yfir þrjú þúsund og fimm hundruð milljarða króna en hún mun liggja norður af 27L/09R brautinni.

Skýringarmynd af þriðju flugbrautinni







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga