flugfréttir

Flugmenn hjá Ryanair samþykkja 10 prósenta launahækkun

1. desember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 11:48

Stjórnklefi á Boeing 737-800 vél Ryanair

Flugmenn hjá Ryanair hafa fallist á nýjan kjarasamning sem felur í sér launahækkun en samningurinn gildir til fimm ára og nær hann yfir 76 starfsstöðvar sem félagið starfrækir í Evrópu.

Samningurinn felur í sér 10 prósenta launahækkun til ársins 2020 sem þýðir að mánaðarlaun fyrsta árið hjá flugstjóra aukast um 280.000 krónur og um 139.000 krónur árlega næstu fjögur árin eftir það sem nemur 839.000 króna hækkun árið 2020.

Meðalgrunnlaun á mánuði hjá flugstjóra hjá Ryanair eru um 723.000 krónur en aðstoðarflugmaður hjá félaginu er þá með öllu lægri laun en samningurinn nær ekki til aðstoðarflugmanna.

Launahækkunin nær til um 50 prósent flugstjóra hjá Ryanair en samingurinn nær ekki til þeirra flugmanna sem fljúga sem verktakar hjá félaginu.

Lágfargjaldafélagið írska vinnur einnig að því að undirbúa tillögu um nýjan kjarasamning fyrir flugliða en þegar hefur verið gengið frá betri kjörum og launahækkun fyrir þá áhafnameðlimi sem starfa á tveimur stærstu flugvöllum Ryanair í Dublin og á Stansted-flugvellinum í London en 90% flugliða samþykktu samninginn.

Samningurinn sem gerður var við flugstjóra felur einnig í sér aukin réttindi, hærra orlof og auknar greiðslur í veikindafríi.

„Farþegar okkar hafa aldrei orðið fyrir barðinu á verkfalli hjá Ryanair sem er met þegar kemur að fjölda þeirra verkfalla sem dynja á öðrum flugfélögum í Evrópu og við teljum að svo verði áfram til ársins 2020“, segir Eddie Wilson, mannauðsstjóri Ryanair.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga