flugfréttir

Flugfélag sem þjónar Area 51 óskar eftir flugmönnum

- Janet flýgur með hermenn til og frá Las Vegas

1. desember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 15:23

Lítið er vitað um flugfélagið Janet sem flýgur með hermenn og starfsfólk til og frá Area 51

Janet, eitt dularfyllsta flugfélag í heimi, óskar nú eftir eftir flugmönnum en hér er um að ræða flugfélag sem lítið er vitað um en það þjónar leynilegu herstöðinni á Area 51 svæðinu í Nevada.

Mikil leynd hvílir yfir flugfélaginu Janet sem rekið er af fyrirtækinu AECOM sem er verktaki fyrir bandaríska flughersins en félagið hefur McCarren-flugvöllinn sem bækistöð.

AECOM auglýsir nú eftir aðstoðarflugmenni til að fljúga Boeing 737-600 vélum en Janet hefur nokkrar slíkar vélar í flota sínum.

Starfsfólk á vegum bandaríska hersins á Area 51 gengur um borð

Umsækjandi þarf að m.a. að hafa 2.000 flugtíma að baki, vera með áritun á Boeing 737, helst NG vélarnar (Next Generation) og hafa gjörsamlega flekklausan sakaferil.

Einnig þarf hann að bera sérstaka „Top Secret“ vottun frá bandaríkjastjórn en flugmaðurinn verður bundinn þagnareiði og má ekki tjá sig um neitt sem hann kann að vita um Area 51 eftir að hann hefur störf.

Janet hefur einnig nokkrar Beech 1900 vélar auk þriggja King Air B200C véla.

Þó það kann að vera mjög svalt að fljúga fyrir flugfélag sem flýgur með hermenn og starfsmenn til og frá Aerea 51 þá kann það ekki að vera mjög gaman að geta ekki sagt neinar sögur úr vinnunni sínu þar sem harðbannað er að ræða neina hluti er varða starfið.

Fyrir þá sem vilja forvitnast meira um starfið og sækja um þá eru allar upplýsingar að finna á vefsíðu AECOM

Janet hafði áður Boeing 737-200 vélar í flotanum



737-600 vél frá Janet á McCarran-flugvellinum í Las Vegas







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga