flugfréttir

Icelandair gerir samning við HAITEC í Þýskalandi

- Þriðji íslenski viðskiptavinur HAITEC Aircraft Maintenance

2. desember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 11:38

Boeing 757 vél Icelandair fyrir framan viðhaldsskýli HAITEC

Icelandair hefur gert samning við HAITEC Aircraft Maintenance GmbH í Þýskalandi um C-skoðun á Boeing 757 vélunum sem mun fara fram á Hahn-flugvellinum í Frankfurt.

Icelandair hefur 26 flugvélar í flota sínum í dag, 23 af gerðinni Boeing 757-200, eina Boeing 757-300 og þá eru komnar tvær breiðþotur af gerðinni Boeing 767-200ER en með stækkun flotans á síðustu árum hefur farþegafjöldi félagsins og leiðarkerfið stækkað gríðarlega.

„Framfarirnar sem hafa orðið eru alveg undraverðar og markmið okkar til lengri tíma er að taka þátt í áframhaldandi velgengni Icelandair“, segir Frank Roth, framkvæmdarstjóri HAITEC.

Ísland er orðin stór markaður fyrir HAITEC og hefur fyrirtækið því núna þrjú stærstu íslensku flugfélögin í sínum viðskiptavinahópi, WOW air, Air Atlanta og núna Icelandair.

HAITEC vinnur nú að því að reisa nýtt 17.000 fermetra viðhaldsskýli sem verður tekið í notkun árið 2016 en með því mun fyrirtækið geta tvöfaldað afsköst sín.

„Stækkunin var óumflýjanleg. Viðskiptavinum okkar hefur fjölgað ört og við þurfum meira skýlapláss til að koma til móts við kröfur viðskiptavina“, segir Roth.

Icelandair er ekki eini viðskiptavinurinn sem hefur bæst við í hópinn hjá HAITEC árið 2015 en önnur flugfélög eru m.a. Danish Air Transport (DAT), Jet Time, Gazpromavia, Privilege Style, Midroc Aviation og Iraqi Airways.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga