flugfréttir

WOW air leitar að nýjum flugvelli

3. desember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 19:37

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air

WOW air segist vera að skoða möguleika með að hefja flug frá öðrum flugvelli en Keflavíkurflugvelli fyrir fyrirhuguð umsvif í langflugi þar sem félagið segir ýmsa vankanta að finna á KEF.

„Keflavíkurflugvöllur er farinn að verða frekar takmarkaður“, sagði Skúli Mogensen, forstjóri WOW air á Future of Air Transport ráðstefnunni í London sem fram fór fyrr í vikunni en WOW air hefur tilkynnt aukin umsvif á næstu árum bæði til Norður-Ameríku og til Evrópu.

„Flugvöllurinn hefur kynnt áætlanir um viðamiklar stækkanir en þær verða samt ekki tilbúnar fyrr en árið 2020 og ég held það verði samt ekki fyrr en árið 2022“, bætir Skúli við en sökum þess hversu langur tími er þangað til íhugar WOW air að nota annan flugvöll fyrir umsvif sín.

TF-MOM á Keflavíkurflugvelli sl. föstudag á leið til Baltimore

Nægur markaður fyrir lágfargjaldarflug yfir Atlantshafið

„Við erum að skoða möguleika á öðrum flugvelli. Við höfum ekkert sérstakt land ennþá í huga“, segir Skúli sem minnir á að fyrir 40 árum síðan hafi Loftleiðir flogið 14% af flugferðum sínum yfir Atlantshafið frá bækistöð í Lúxemborg með viðkomu í Keflavík á leiðinni vestur yfir haf.

„Að mörgu leiti hefur Icelandair gert góða hluti á mörgum sviðum í flugi yfir Atlantshafið en það er þó ekki lágfargjaldafélag“.

Skúli segir að 98% af öllum þeim flugferðum sem farnar eru yfir Atlantshafið séu á vegum stærri flugfélaga og ríkisflugfélaga og sé því nægur markaður fyrir lágfargjaldaflugfélög.

Skúli tekur fram að lágfargjaldafélög muni efla og styrkja markaðinn og en ekki „stela“ farþegum frá þeim flugfélögum sem fljúga yfir hafið milli Ameríku og Evrópu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga