flugfréttir

FAA fer fram á að skrá alla dróna vestanhafs

- Allt að 3 milljóna króna sekt og fangelsi fyrir óskráð flygildi

14. desember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 20:12

Nú skulu drónar verða skráðir

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) kynntu í dag reglugerð sem fer fram á að allir drónar og fjarstýrð flygildi skulu skráð í gagnabanka vestanhafs og verði eigendur þeirra að skrásetja þá frá og með 21. desember.

Um er að ræða hundruði þúsundir dróna sem nú þegar eru í notkun í Bandaríkjunum sem þarf að skrá með nafni eiganda ásamt upplýsingum um heimilisfang og netfangi.

Þeir eigendur sem þegar eiga dróna þurfa að skrá flygildin fyrir 16. febrúar 2016 en nýir eigendur þurfa að skrá nýja dróna áður en þeir fljúga fyrsta flugið.

Skráning mun kosta um 400 krónur fyrir eiganda óháð því hversu mörg flygildi hann á og gildir skráningin í þrjú ár.

Merkja þarf drónann með sérstöku skráningarnúmeri en með því verður hægt að rekja og hafa uppi á eiganda sé flygildinu flogið of nálægt flugvélum, yfir bannsvæði eða of hátt upp í loft en þetta er gert til að stuðla að bættara öryggi í lofthelgi en fjöldi flygilda hefur ógnað farþegaflugi að undanförnu.

„Skilaboð mín til þeirra sem eru að fljúga drónum eru mjög einföld. Skráið flygildið ykkar í tæka tíð“, segir Anthony Foxx hjá FAA en flugmálayfirvöldum vestanhafs berast yfir 100 kvartanir í hverjum mánuði frá flugmönnum sem segjast hafa komið auga á dróna sem var flogið hættulega nálægt þeim.

Þeir sem munu ekki skrá dróna sína í tæka tíð eiga von á því að þurfa greiða sektir upp á 3 milljónir króna en einnig gætu þeir átt yfir höfði sér þriggja ára fangelsi en vonast er til þess að allir muni skrá dróna sína svo ekki þurfi að koma til þess að beita refsingu.

Tim Cannoll, flugstjóri og formaður Air Line Pilots Association, segir að skráning muni auka öryggi en telur að einnig væri áhrifaríkt að krefjast þess að drónar séu skráðir við kaup út í búð áður en flygildið er afhent til kaupanda.

Dave Mathewson, formaður samtaka flygildafélagsins Academy of Model Aeronautics, er hinsvegar óánægður með reglugerðina og segir hann að fræðsla sé rétta leiðin til að bæta öryggið í stað þess að krefjast skráningar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga