flugfréttir
Farþegi varpaði ólöglegu niðurhali á vegginn um borð
- Vissi ekki að leikkonan í myndinni sat við hliðina á honum
Farþeginn var að horfa á útgáfu af bíómynd sem hafði verið tekin upp á myndavél í kvikmyndahúsí
Flugfarþega einum á Indlandi brá heldur betur í brún á dögunum er hann varpaði bíómynd af farsíma á vegginn fyrir framan sig um borð í innanlandsflugi.
Myndina hafði hann halað niður af Netinu með ólöglegum hætti en svo skemmtilega vildi til að
leikkonan sem fór með aðalhlutverkið sat við hliðina á honum.
Kriti Sanon er 25 ára indversk leikkona sem hefur notið mikillar velgengni í Bollywood
en hún lék nýverið í kvikmynd sem heitir Dilwale en myndin var frumsýnd á Indlandi
þann 18. desember og er því enn í bíó.
Kriti setti umsvifalaus stöðu á Twitter síðu sína þar sem hún skrifaði: „Farþeginn við hliðina á mér
er að horfa á sjóræningjaútgáfu af Dilwale fyrir framan mig á vegg“.
Ljósmynd sem indverka leikkonan Kriti Sanon setti á Twitter-síðu sína sýnir farþega horfa á sjóræningja útgáfu af bíómyndinni sem hún lék í
Kriti sagði að það væri mjög sorglegt eftir alla þessa erfiðisvinnu þar sem fjöldi fagfólks leggur
hönd á plóg að þá sé fólk að horfa á útkomuna í hræðilega lélegum gæðum.
Leikkonan sagði við farþegann við hliðina á sér að hann ætti frekar að fara á myndina í bíó
þar sem hann myndi njóta myndarinnar betur en farþeginn kærði sig lítið um slíkt en sýndi henni
stoltur myndvarpabúnaðinn á símanum sínum.
Leikkonan Kriti Sanon
Veggspjald fyrir myndina Dilwale
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.