flugfréttir

Júmbó-þota BA nauðlenti á Heathrow á 3 hjólastellum í stað fimm

- Óttuðust að vélin myndi skella niður á stélið

31. janúar 2016

|

Frétt skrifuð kl. 14:17

Skjáskot af myndbandi sem ökumaður náði af vélinni er hún lenti í gær með aðeins tvö aðalhjólastellin niðri

Júmbó-þota frá British Airways lent í hrakningum í gær er tvö hjólastell vélarinnar fóru ekki niður fyrir lendingu er hún þurfti að snúa við til Heathrow-flugvallar vegna tæknilegs vandamáls.

Vélin sem er af gerðinni Boeing 747-400 var skammt suður af Íslandi seinnipartinn í gær á leið sinni til Chicago þegar bilun kom upp og var farþegum tilkynnt að nauðsynlegt væri að snúa við vegna tæknilegrar bilunar.

Í aðfluginu losaði júmbó-þotan sig við eldsneyti til að létta vélina fyrir lendingu en þegar hjólin voru sett niður kom viðvörun upp um að ekki höfðu öll hjólin farið niður.

Hjólastellin sem fóru ekki niður sýnd í appelsínugula rammanum

Í ljós kom að aðeins höfðu þrjú hjólastell af fimm farið niður; nefhjól, innri hjólastell en ekki ytri hjólin nálægt vængjunum.

Vélin lenti giftusamlega á braut 27R á Heathrow-flugvelli um sexleytið í gærkvöldi og lokaðist önnur flugbrautin í um klukkustund en draga þurfti vélina af brautinni.

293 farþegar voru um borð í vélinni og fjórtán manna áhöfn og var farþegum gert að yfirgefa vélina rólega og voru þeir sem sátu aftast í vélinni látnir fara fyrst frá borði af ótta við að vélin myndi detta niður á stélið.

Farþegar hafa hampað flugmönnunum fyrir færni og fagmannleika í kjölfar lendingarinnar og einnig fyrir að hafa upplýst þá í kallkerfi varðandi hvað væri í gangi og næstu skref.

Lendingin var frekar mjúk að sögn farþega þrátt fyrir atvikið en búið var að láta alla vita að láta sér ekki bregða þótt að slökkvilið og sjúkrabílar myndu umkringja vélina.

Önnur júmbó-þota var gerð tiltæk sem fór í loftið með farþegana til Chicago með 10 klukkustunda seinkun.



Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga