flugfréttir
Flugfreyjur slóust um borð í vél Delta
Vélin var á leið frá Minneapolis til Los Angeles þann 22. janúar þegar atvikið átti sér stað
Farþegaþota frá Delta Air Lines neyddist til þess að lenda óvænt í Salt Lake City eftir að slagsmál brutust út milli tveggja flugfreyja um borð í 37.000 fetum.
Vélin, sem var af gerðinni Boeing 757-200, var á leið frá Minneapolis til Los Angeles þegar flugfreyjurnar tvær
hófu að slást í kjölfar rifrildis um vinnutíma þeirra.
Þriðja flugfreyjan reyndi að skakka leikinn á milli þeirra en endaði með að fá sjálf á sig högg en við það
lét hún flugstjórann vita sem ákvað að lenda í Utah.
Farþegar biðu í eina klukkustund og 20 mínútur um borð í vélinni áður en haldið var áfram til
Los Angeles.
Samkvæmt Aviation Herald kemur fram að þrír áhafnarmeðlimir hefðu verið skildir eftir vegna
„slæmrar hegðunar“ en Delta Air Lines sendi farþegum afskökunarbeiðni.
„Nokkrir af starfsmönnum okkar sýndu ekki sína bestu hegðun en við gerum þær kröfur að starfsfólk
sýni eingöngu fágaða framkomu og kurteisi í garð farþega og samstarfsmanna sinna en það sem þið
urðuð vitni að var langt frá stefni félagsins“, sagði í tilkynningu frá félaginu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slagsmál brjótast út meðal áhafnar vestanhafs en í september árið 2012
voru tveir flugliðar hjá United Airlines sem deildu um það hver mætti sitja í sætinu í stjórnklefanum, sem betur er þekkt
sem „jump seat“ en hálftíma eftir flugtak þurfti flugstjórinn að snúa vélinni við.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.