flugfréttir

Spá gati í framleiðslunni á Boeing 737

2. febrúar 2016

|

Frétt skrifuð kl. 11:33

Boeing 737 MAX dregin út úr samsetningarsal í Renton

Sérfræðingar í fluginu telja að „gat“ sé framundan í framleiðslunni á Boeing 737 vélunum þar sem eftirspurn í 737 Next Generation vélarnar hefur farið dvínandi eftir að Boeing 737 MAX vélin kom á markaðinn.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá David Strass, sem sérhæfir sig í flugmarkaðsmálum hjá UBS, en samkvæmt hans tölum þá stefnir í að Boeing muni eiga erfitt með að brúa bilið og fylla upp í auð framleiðslupláss á Boeing 737NG vélinni þar til framleiðsla á Boeing 737 MAX er komin á sama framleiðsluhraða.

Talið er að Boeing muni afhenda 493 eintök af Boeing 737 á þessu ári sem er 11 vélum færra en framleiðsluhraði upp á 42 vélar á mánuði segir til um.

Rétt undir 1.300 eintök af Boeing 737NG eru eftir ósmíðaðar í Renton en miðað við fyrirhugaðan framleiðsluhraða fyrir fyrstu skrefinn í framleiðslu á Boeing 737 MAX þá er talið að Boeing muni neyðast til þess að hægja á ferlinu. -

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX í litum Southwest Airlines

Boeing áætlar að afhenda fyrstu Boeing 737 MAX vélina síðla sumars árið 2017 til Southwest Airlines sem þýðir að 18 mánuðir munu líða frá fyrsta fluginu þar til afhending hefst sem er samkvæmt greiningu sérfræðinga óvenju langur tími.

Þess má geta að aðeins liðu 10 mánuðir frá jómfrúarflugi Boeing 787 og þar til fyrsta eintakið var afhent til ANA (All Nippon Airways).

Strass bendir á að Airbus hafi þurft 14 mánuði frá jómfrúarflugi Airbus A320neo og þar til vélin var afhent Lufthansa fyrr í þessum mánuði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga