flugfréttir

SWISS fær fyrstu Boeing 777-300ER vélina

- Veldur ursla á Mallorca í flugprófunum

2. febrúar 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:39

HB-JNA kemur heim til Zurich í fylgd tveggja F-18 orrustuþotna sl. föstudag

Nýjasta og fyrsta Boeing 777-300ER vélin fyrir Swiss International Air Lines hefur verið sl. daga við flugprófanir við spænsku ferðamannaeyjuna Mallorca þar sem vélin hefur m.a. hringsólað í lágflugi yfir bænum Palma.

Lágflugið hefur fengið mikla athygli meðal íbúa sem hafa margir hverjir óttast að ekki sé allt með felldu með vélina og hafa spænsk flugmálayfirvöld fengið nokkur símtöl þar sem einhvejir hafa lýst yfir áhyggjum sínum þar sem hún hefur verið í lágflugi í aðeins 400 metra hæð.

Talsmaður AENA á Spáni segir að mjög algengt sé að erlend flugfélög þjálfi áhafnir á nýja flugvélategund frá flugvellinum í Palma de Mallorca en séð verði til þess að hún muni hækka flugið í næstu prófunum sem framundan eru í vikunni.

Ljósmynd sem áhyggjufullur íbúi í Palma tók af Boeing 777-300ER vél Swiss í lágfluginu

Swiss International Air Lines fékk fyrstu vélina, HB-JNA, afhenta sl. föstudag og voru tvær svissneskar F-18 orrustuþotur sem fylgdu vélinni heim til Zurich síðasta spölin eftir 8.418 kílómetra langt afhendingarflug frá Everett.

Þetta er fyrsta Boeing-vélin í flota félagsins sem mun fá átta til viðbótar frá Boeing á næstu tveimur árum.

Vélarnar taka 340 farþega, átta á First Class, 62 á Business Class og 270 á almennu farrými en fyrsti Boeing 777-300ER áfangastaður flugfélagsins svissneska verður New York JFK.

Myndir frá heimkomu fyrstu Boeing 777-300ER vélarinnar til Zurich

























  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga