flugfréttir
EASA vill vita hvernig gengur með regluna með tvo í stjórnklefanum
- Opnað fyrir könnun á Netinu fyrir flugmenn, flugfélög og áhafnir
Aðstoðarflugmaður í stjórnklefa á Boeing 767 vél American Airlines á leið frá Boston til París
Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) vill fá að vita frá flugfélögunum hvaða árangur hefur hlotist af reglugerðinni sem sett var á laggirnar í fyrra þar sem farið er fram á að ávallt séu tveir í áhöfn í flugstjórnarklefanum á meðan á flugi stendur.
EASA hefur opnað fyrir könnun á Netinu þar sem flugfélög eru hvött til þess að fylla út spurningar
varðandi reynsluna af reglunni.
Flest flugfélög tóku upp regluna með tvo í stjórnklefanum í kjölfar þess er Airbus A320 vél Germanwings
fórst í Ölpunum í mars 2015 eftir að aðstoðarflugmaðurinn Andreas Lubitz læsti sig inni í stjórnlefanum
eftir að flugstjórinn brá sér á salerni en talið er víst að hann hafi grandað vélinni vísvitandi.
EASA gaf í fyrra út yfirlýsingu í kjölfar þess er Airbus A320 vél
Germanwings fórst í mars
Aðeins þrír dagar liðu eftir að vélin fórst þar til evrópsk flugmálayfirvöld mæltu með því að einn
reyndur flugmaður skuli vera í stjórnklefanum ásamt öðrum áhafnarmeðlimi er annar flugmaðurinn ætlar
að bregða sér frá.
EASA vill því núna fá viðbrögð varðandi regluna frá flugmönnum, flugrekstraraðilum, flugliðum, yfirvöldum og öðrum
sem koma að flugrekstri.
Könnunina má finna með því að smella hér á vefsíðu EASA og verður opið fyrir innsendingar til 11. mars
en farið verður með öll svör sem trúnaðarmál.
Fyrir aprílmánuð mun EASA gefa frá sér skýrslu þar sem niðurstöðurnar úr könnuninni verða kynntar
með frekari fyrirmælum og greiningu varðandi næstu skref.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.