flugfréttir
Icelandair mun hefja flug til Paris Orly
Boeing 757-200 vél Icelandair á Charles de Gaulle flugvellinum í París
Icelandair hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til Orly flugvallarins í París og verður fyrsta flugið 28. mars en Icelandair hefur boðið upp á flug til og frá París um Charles De Gaulle flugvöllinn en mun nú bjóða upp á flug á báða vellina.
„Orly flugvöllurinn er mjög eftirsóttur af flugfélögum og langur biðlisti eftir því að komast þar að. Þaðan eru mjög góðar tengingar innan Frakklands og til nágrannalanda í Suður-Evrópu, en lítið framboð af flugi til Norður-Ameríku. Orly býður því upp á spennandi tækifæri fyrir okkur og er kærkomin viðbót í leiðakerfi Icelandair“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.
Orly verður 27. áfangastaður Icelandair í Evrópu, auk þess sem félagið flýgur til 16 áfangastaða í Norður-Ameríku. Orly er fjórði nýi áfangastaðurinn á þessu ári, en Icelandair mun hefja flug til Aberdeen, Chicago og Montreal í vor.
Paris Orly er annar stærsti flugvöllur Frakklands
Icelandair mun í sumar bjóða upp á 23 flug í viku til Parísar í sumar, 17 flug (2-3 á dag) til Charles De Gaulle og allt að 6 sinnum á viku til Orly. „Það er líka ánægjulegt að geta boðið upp á aukið framboð til Frakklands nú þegar áhuginn á EM í fótbolta fer stöðugt vaxandi“, segir Birkir.
Á þessu ári eru 40 ár frá því Icelandair hóf flug til Parísar. Lengi framan af var einmitt flogið á Orly flugvöllinn sem var aðal flugvöllur Frakklands áður en Charles De Gaulle var byggður á áttunda áratug síðustu aldar. Tæplega 30 milljón farþegar fara um Orly árlega og er völlurinn sá 13 stærsti í Evrópu. Hann er í suðurhluta borgarinnar, þykir þægilegur fyrir viðskiptavini og tengist mjög vel innlandssamgöngum í Frakklandi.
Auk flugsins til Orly mun Icelandair auka tíðni á nokkra aðra áfangastaði beggja vegna Atlantshafsins og mun bæta við einni Boeing 757 farþegaþotu í sumar og verður með 25 vélar af Boeing 757 gerð og 2 Boeing 767 breiðþotur í flugflotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.