flugfréttir
Ekki enn vitað hvað olli sprengingunni
Vélin hafði verið á lofti í korter þegar sprenging varð um borð
Ekki er enn vitað hvað olli sprengingunni í gær um borð í farþegaþotu af gerðinni Airbus A321 sem sprakk skömmu eftir flugtak frá Mogadishu.
Vélin hafði aðeins verið í korter á lofti þegar sprenging varð hægra megin nálægt
sætaröð 16 og 17 með þeim afleiðingum að gat kom á skrokk vélarinnar.
Vélin, sem var á leiðinni til Djibouti á vegum Daallo Airlines, hafði aldrei
áður lent í neinu atviki á þeim þremur árum sem vélin hefur verið í flota félagsins
en enn er of snemmt til að segja til um hvort að um sprengju hafi verið að ræða.
Tveir um borð hlutu minniháttar áverka en sögusagnir fóru á kreik um að einn
farþegi hefði fallið til jarðar út um gatið í um 40 kílómetra fjarlægð
frá Mogadishu.
Rannsókn á atvikinu stendur yfir og er vonast til þess að hlutir munu skýrast á morgun
en vélin hafði komið áður frá Jeddah í Sádí-Arabíu til Mogadishu áður en hún
fór í flugið til Djibouti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.