flugfréttir

Richard Anderson mun hætta sem forstjóri Delta

- Ed Bastian mun taka við framkvæmdarstjórastólnum

3. febrúar 2016

|

Frétt skrifuð kl. 23:55

Richard Anderson hefur verið framkvæmdarstjóri Delta Air Lines frá árinu 2007

Richard Anderson, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines, tilkynnti í dag að hann ætli að segja starfi sínu lausu sem forstjóri félagsins í maí í vor.

Anderson mun taka við stjórnarformannsstöðu innan félagsins en Ed Bastion, mun taka við framkvæmdarstjórastólnum hans í stað.

Anderson, sem er 60 ára, hefur stýrt félaginu sl. 9 ár en hann tók við Delta Air Lines er félagið var á barmi gjaldþrots árið 2007 áður en það sameinaðist rekstri Northwest Airlines árið 2008 en Anderson tókst að rétta rekstur félagsins svo sannarlega við eftir það en til að mynda liðu heilir 160 dagar í röð árið 2015 þar sem Delta Air Lines þurfti aldrei að aflýsa flugi.

Síðan þá hefur Delta Air Lines notið velgengni á alþjóðamarkaði, skilað inn góðum hagnaði, fjárfest í öðrum flugfélögum og keypt sína eigin olíuhreinsistöð og gefið vel af sér til starfsmanna m.a. með veglegum launahækkunum.

Ed Bastian mun taka við stjórn Delta Air Lines

Þá hefur Richard Anderson verið í forsvari fyrir stóru bandarísku flugfélögin þrjú sem hafa reynt að setja stólinn fyrir dyrnar hjá flugfélögunum þremur fyrir botni Persaflóa og hefur Anderson ásakað þau félög um að hafa þegið ólögmæta styrki frá sínum löndum sem hefur eyðilagt samkeppnina fyrir bandarískum flugfélögum.

Ed Bastian, sem tekur við, hefur verið í stjórn félagsins en hann hóf störf hjá Delta árið 1998 í fjármáladeildinni en hætti að starfa hjá félaginu árið 2000 en kom aftur árið 2005 sem fjármálastjóri og gegndi lykilhlutverki er félagið fór í gegnum gjaldþrotavernd.

Bastian sóttist eftir forstjórastólnum hjá Delta árið 2007 en Richard Anderson var ráðinn í hans stað en þá hafði Anderson verið í stjórn Northwest.

Bastian hefur einnig komið að fjárfestingum og samstarfi við Virgin Atlantic, AeroMexico, Gol Linhas og China Eastern Airlines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga