flugfréttir

Boeing 737 MAX gæti komið fyrr á markaðinn

- Möguleiki að flýta afhendingum ef flugprófanir ganga vel

4. febrúar 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:00

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX í litum Icelandair

Svo gæti farið að Boeing ætli sér að hefja afhendingar fyrr á nýju Boeing 737 MAX vélinni á undan áætlun.

Það var Wall Street Journal sem greindi frá því að flugvélaframleiðandinn gæti tekið það undarlega skref í sögu framleiðslu á farþegaþotum að flýta afhendingum á nýrri tegund af farþegaþotu.

Einnig segir að Boeing sé í viðræðum við flugfélög um þann möguleika að flýta afhendingum og gætu flugfélög því fengið vélina allt að 6 mánuðum fyrr en núverandi afhendingaráætlun segir til um.

Ef svo væri myndi Icelandair fá fyrstu Boeing 737 MAX 8 vélina fyrr en áætlað er en félagið á von á fyrstu vélinni árið 2018.

Fyrsta Boeing 737 MAX vélin í jómfrúarfluginu í seinustu viku

Talsmaður Boeing sagði í samtali við Alltumflug.is að þær fréttir varðandi að Boeing 737 MAX sé að koma fyrr á markaðinn séu ekki staðfestar og sé núverandi afhending á fyrstu Boeing 737 MAX vélinni óbreytt sem er þriðji ársfjórðungur ársins 2017 og hafi ekki neinar viðræður farið fram um að flýta afhendingum.

Of snemmt að fagna

Greg Smith, fjármálastjóri Boeing, sagði í gær á hluthafafundi að verið sé að skoða möguleika á að afhenda Boeing 737 MAX vélarnar á undan áætlun ef flugprófanir munu ganga samkvæmt áætlun og snuðrulaust fyrir sig.

„Það er of snemmt að fagna á þessum tímapunkti með að vélarnar verði afhentar fyrr en áætlað er“, sagði Greg Smith sem tók það fram að 2016 verður það ár þar sem framleiðslan mun færast hægt og bítandi úr Boeing 737NG yfir í Boeing 737 MAX.

Flestir flugvélaframleiðendur hafa sl. ár verið í baráttu við að afhenda nýja flugvélategund á réttum tíma og hafa seinkanir ekki verið óalgengar vegna tæknilegra vandamála sem oft hafa skotið upp kollinum í framleiðsluferlinu.

Enn sem komið er er Boeing 737 MAX áætlunin á réttum tíma en þó gætu komið upp seinkanir á meðan á flugprófunum stendur yfir en ekki verður þörf á eins miklum prófunum með vélina þar sem hún byggir á Boeing 737 en fleiri tilraunir fóru fram með Dreamliner-vélina þar sem um nýja flugvélategund var að ræða.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga