flugfréttir
Einkaþota Donald Trump nauðlendir í Nashville
Boeing 757 vél Donald Trump
Boeing 757 einkaþota forsetaframbjóðandans Donald Trump neyddist til þess að lenda óvænt í gær í Nashville í Tennessee eftir að bilun kom upp í hreyfli.
Trump var á leið frá Iowa á fund með Asa Hutchinson, ríkisstjóra Arkansas í Little Rock þegar bilunin kom upp og lenti vélin í heil á höldnu
í Nashville skömmu síðar en þetta er fyrsta nauðlendingin í forsetaframboðstíðinni vestanhafs sem vitað er um.
Donald Trump dreif sig í aðra vél sem flaug með hann til Little Rock sem var minni vél en Boeing 757 sem tekin var á leigu
en auðkýfingurinn skildi Boeing 757 einkaþotuna eftir í Tennessee.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) munu rannsaka atvikið og hreyflabilunina en hreyflarnir á vél Trumps
eru af gerðinni Rolls-Royce RB211.
Þess má geta að Donald Trump hefur í forsetframboðsferðum sínum leyft börnum að hlaupa í gegnum einkaþotuna
sína en hann hefur grínast með það að fullorðnum sé ekki leyft að fara inn í vélina þar sem „foreldrarnir myndu bara eyðileggja hana“.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.