flugfréttir
Flugfélag veit ekki hvar 2.500 farþegar eru niðurkomnir
- Tölvukerfið hjá PIA liggur niðri vegna mótmæla
Boeing 777 vél Pakistan International Airlines (PIA)
Það kemur á hverjum degi fyrir að flugfélög týni farangri og þurfa að hafa fyrir því að vita hvar ferðatöskur farþega eru niðurkomnar.
Það er þó mjög sjaldgæft að flugfélög týni farþegum en þannig er þó í pottinn búið þessa stundina
hjá Pakistan International Airlines (PIA) sem hefur ekki hugmynd um hvar um 2.000 farþegar eru niðurkomnir.
PIA stendur í miðjum deilum við starfsmenn sína sem eru í verkfalli og logar allt í mótmælum við
höfuðstöðvar félagsins þar sem fyrirhugaðri einkavæðingu flugfélagsins er mótmælt.
Starfsmenn PIA mótmæla í Karachi
Flugfélagið pakistanska þurfti að fella niður 200 flugferðir vegna þessa en félagið hefur ekki hugmynd
um hvar allir farþegarnir eru niðurkomnir þar sem búið er að loka fyrir tölvukerfi félagsins sem heldur
utan um farþegaupplýsingar.
Um 2.500 farþegar eru strandaglópar í Evrópu og Norður-Ameríku en PIA vinnur að því að hafa
uppi á farþegunum og viðræður standa yfir við Eithad Airways og Turkish Airlines um að koma þeim
á leiðarenda.
„Við höfum engar upplýsingar um hversu margir faþegar eru að bíða eftir flugi eða hvar þeir eru núna
þar sem búið er að slökkva á öllu tölvukerfinu sem liggur niðri og engar pantanir eru í gangi eins
og er“, segir Danyal Gilani, talsmaður félagsins.
Ríkisstjórn Pakistan á 92 prósent í Pakistan International Airlines en fyrirhugað er að selja 26 prósent
í félaginu til einkaaðila.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.