flugfréttir
WOW air kaupir tvær nýjar Airbus A321 vélar
TF-MOM á Reina Sofia flugvellinum á Tenerife
WOW air hefur fest kaup á tveimur nýjum farþegaþotum af gerðinni Airbus A321 sem munu bætast í flotann síðar í þessum mánuði.
WOW air hefur í dag fimm vélar í flotanum, tvær Airbus A320 vélar og tvær Airbus A321 auk þess
sem ein A320 vél frá Air VIA hefur flogið á vegum WOW air upp á síðkastið.
Þá á WOW air von á þremur breiðþotum af gerðinni Airbus A330-300 en með nýju A321 vélunum
tveimur mun flugfloti WOW air því telja 10 vélar í vor.
Nýju Airbus A321 vélarnar sem munu bætast í flotann verða notaðar m.a. í áætlunarflugi til
Bandaríkjanna og til Kanada en félagið mun í vor og sumar hefja flug til Bristol, Frankfurt, Los Angeles,
Montréal, Nice, San Francisco, Stokkhólms og Toronto.
Í tilkynningu frá WOW air kemur fram að ein Airbus A321 vél sé metinn á 15 milljarða samkvæmt listaverði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.