flugfréttir

LEAP-1A hreyfillinn mun ræsa sig á 50 sekúndum

5. febrúar 2016

|

Frétt skrifuð kl. 23:52

Airbus A320neo tilraunavél í flugtaki

Hreyflaframleiðandinn CFM International segir að ekkert vandamál verði með þann tíma sem mun taka nýja LEAP-1A hreyfilinn að ræsa sig þegar hann kemur á markaðinn í sumar.

LEAP-1A er annar þeirra hreyfla sem munu knýja áfram Airbus A32neo vélarnar frá Airbus en samkeppnisaðilinn Pratt & Whitney hefur lent í vandræðum með PW1100G hreyfilinn er varðar ræsitíma.

Vegna galla í hugbúnaði á fyrstu hreyflunum kom í ljós að þeir verða að vera í lausagangi í allt að 2 mínútur þar til óhætt er að setja fullt afl á hreyflanna til að koma í veg fyrir að þeir ofhitni.

LEAP-1A hreyfillinn

Það varð til þess Qatar Airways neitaði að taka við fyrstu Airbus A320neo vélinni fyrst allra flugfélaga en Lufthansa hjóp í skarðið og tók við sinni fyrstu A320neo vél í janúar.

CFM International segir að ræsitími á LEAP-1A hreyflinum séu 50 sekúndur sem þýðir að 50 sekúndur þurfa að líða frá því kveikt sé á rofa sem virkir hreyfilinn og þar til hægt er að setja hann í gang.

Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, sagði í desember að félagið myndi ekki taka við fyrstu vélinni þar sem lengri ræsitími myndi lengja viðsnúningstíma vélarinnar á flugvöllum.

United Technologies, móðurfélag Pratt & Whitney, segir að uppfærsla fyrir hugbúnaðinn fyrir PW1100G hreyfilinn verði tilbúin í þessum mánuði og muni nýjar Airbus A320neo vélar koma með uppfærslunni í vor.

„LEAP-1A hreyfillinn var hannaður til þess að hafa ræsitíma eins stuttan og mögulegt er með sérstöku kælikerfi í hreyflinum nálægt viftunni“, segir Francois Bastin, framkvæmdarstjóri CFM.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga