flugfréttir

Tók óvart vitlaust flug hjá öðru flugfélagi undir öðru nafni

23. febrúar 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:25

Airbus A330 vél Hong Kong Airlines í flugtaki á flugvellinum í Hong Kong

Það eru eflaust ekki mörgum sem tekst að fara um borð í vitlausa flugvél, hjá röngu flugfélagi og það undir röngu nafni.

34 ára gömul kona frá Taívan fór í undarlegt flugferðalag fyrr í þessum mánuði en unnusti hennar hafði eftir áramót bókað flugið hennar frá Tapei til Hong Kong með flugfélaginu Hong Kong Airlines.

Þegar konan, sem ber eftirnafnið Hong, var komin til Hong Kong, fékk unnusti hennar SMS skilaboð frá flugfélaginu um að Hong hefði ekki verið um borð í vélinni og hefði hún ekki innritað sig inn í flugið - Þrátt fyrir það lenti Hong í Hong Kong heil á höldnu.

Konan átti bókað flug með Hong Kong Airlines en ekki Cathay
Pacific

Í ljós kom að þegar Hong mætti út á flugvöllinn í Taipei hafði hún óvart farið að innritunarborði hjá flugfélaginu Cathay Pacific og tékkaði sig inn í vitlaust flug.

Á þeim tímapunkti hefði einhver starfsmaður átt að koma auga á mistökin en svo var ekki og fékk konan úthlutað brottfararspjald sem átti að afhendast öðrum farþega sem var karlmaður í þokkabót - en fyrir hreina tilviljun bar hún sama eftirnafn en karlmaðurinn sem átti að fá brottfararspjaldið hét einnig Hong.

Með undarlegum hætti tókst henni að fara um borð í vitlaust flug hjá öðru flugfélagi með vitlaust brottfararspjald en áfangastaðurinn var þó betur fer hinn sami og lenti hún í Hong Kong án þess að lenda í veseni á flugvellinum við komuna.

Cathay Pacific segir að verið sé að rannsaka hvernig konan komst um borð í vél félagsins og alla leið á áfangastað þegar hún átti aldrei bókað með félaginu og þá sé einnig verið að skoða starfsemi er snýr að innritun á flugvellinum í Taipei.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga