flugfréttir

Maður komst um borð í júmbó-þotu á Heathrow og læsti sig inni í stjórnklefa

6. mars 2016

|

Frétt skrifuð kl. 22:37

Júmbó-þota British Airways á Heathrow-flugvelli

Mikill viðbúnaður var á Heathrow-flugvellinum í London í gær eftir að karlmaður komst óáreittur inn í júmbó-þotu British Airways og lokaði sig af inni í stjórnklefa vélarinnar.

Maðurinn, sem er 38 ára, komst inn um öryggishlið flugvallarins við viðhaldssvæði BA nálægt Hatton Cross og hljóp inn í flugskýli og um borð í tóma farþegaþotu af gerðinni Boeing 747-400.

Eftir að starfsfólk flugvallarins fór um borð í vélina flúði hann og hljóp alveg fram í stjórnklefann þar sem hann læsti sig inni.

Júmbó-þota British Airways í flugskýli BA Engineering

Öryggisverðir náðu ekki til hans þar sem dyrnar á stjórnklefum flugvéla eru harðlæstar og ekki hægt að opna þær með neinum hætti að utanverðu en dyrnar eru hannaðar til að vernda flugmenn gegn hryðjuverkamönnum eða flugdólgum á meðan á flugi stendur.

„Þetta voru mjög flóknar og erfiðar aðstæður sem enduðu með því að kalla þurfti til sérfræðinga og slökkviliðsmenn til þess að opna dyrnar utan frá“, sagði aðili sem kunnugur er málinu.

Að lokum tókst að opna dyrnar inn í stjórnklefann og ruddist lögregla inn og handsamaði manninn en hann heitir Louis Pedro Verdasca dos Santos Costa og er af portúgölsku bergin brotinn og býr í Hounslow-hverfinu nálægt Heathrow-flugvellinum.

Hann var hefur verið kærður fyrir nokkur brot og hefur hann verið síðan í gærmorgun í haldi lögreglunnar og mun verða dreginn fyrir dómara í réttarsal í vikunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga