flugfréttir
Ryanair býður upp á Boeing 737-700 fyrir viðskiptaferðir
Myndir af farþegarými vélarinnar á vefsíðu Ryanair
Ryanair býður nú fyrirtækjum upp á að taka á leigu Boeing 737-700 þotu fyrir sérstakar viðskiptaferðir en vélin hefur verið útfærð með 60 business class sætum.
Ryanair festi kaup á einni Boeing 737-700 vél í fyrra og sagði félagið að til stæði að nota vélina
sem varavél og einnig yrði hún notuð til þjálfunar flugmanna.
Vélin mun geta flogið allt að 6 klukkustundir og kemur vélin með breiðum leðursætum og þá verður boðið
upp á veglegar máltíðir í vélinni sem verða framreiddar til farþega.
Fyrirtækjum stendur til boða að taka vélina á leigu en Ryanair mun annast flugrekstur og útvega flugmenn og áhafnir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.