flugfréttir

Öll áhöfnin hjá Icelandair til New York var skipuð konum

9. mars 2016

|

Frétt skrifuð kl. 20:14

Áhöfn Icelandair sem flaug í gær til New York JFK

Það var engan karlmann að finna í áhöfn Icelandair sem flaug í gær til Kennedy-flugvallarins í New York en í gær, 8. mars, var alþjóðlegur baráttudagur kvenna.

Áhöfnin var eingöngu skipuð konum beggja megin við dyr stjórnklefans um borð í Hengli (TF-FIX) sem er lengsta Boeing 757 vélin í flota félagsins.

Á meðfylgjandi mynd má sjá áhöfnina í gær en flugmenn vélarinnar voru þær Margrét Elín Arnarsdóttir og Jenna Lilja Jónsdóttir var flugstjórinn.

Flugliðarnir voru Helga Ragnarsdóttir, Vigdís Braga Gísladóttir, Helga Björg Antonsdóttir, Birna Ruth Jóhannsdóttir og Thelma Ólafsdóttir.

Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn hjá Icelandair þar sem öll áhöfnin hefur verið skipuð konum en þann 4. júlí árið 2013 gerðist það þó í fyrsta sinn að tilviljun réði för að flugmenn og flugliðar vélarinnar voru konur um borð í flugi til London Heathrow.

Þá átti sér stað sá atburður hjá Icelandair þann 23. júní árið 2001 að í fyrsta sinn í sögu áætlunarflugs á Íslandi var hefðbundnum kynhlutverkum var víxlað - flugstjóri og flugmaður voru kvenkyns, en allar „flugfreyjurnar“ voru karlkyns.

Konur hafa sífellt verið að sækja í sig veðrið í fluginu og sum flugfélög hafa eindregið hvatt konur til þess að hefja flugnám á borð við SWISS og easyJet en hlutfall karlkyns flugmanna í atvinnufluginu er þó enn mun hærri en t.a.m. er aðeins 6% flugmanna hjá Air Canada kvenmenn.

Mörg flugfélög flugu í gær áhöfn sem samanstóð eingöngu af konum

Icelandair var ekki eina flugfélagið í gær sem sendi kvenkyns áhöfn til New York því það gerði Lufthansa og Swiss International Air Lines einnig en konurnar hjá Lufthansa flugu Boeing 747-8 júmbó-þotu til JFK á meðan SWISS sendi Airbus A330.

Þá flaug Air India í gær lengsta flug sem flogið hefur verið með konum um borð frá Delhi til San Francisco og einungis konur voru um borð í flugi Air Canada í gær frá Toronto til Fort Myers.

SWISS International Air Lines



Lufthansa





Air Canada







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga