flugfréttir
EasyJet hætti við flugtak vegna skiptilykils á vængnum
Skiptilykillinn var fastur á milli tveggja flapsa á væng vélarinnar
Farþegaþota af gerðinni Airbus A319 þurfti að hætta við flugtak á flugvellinum í Genf í Sviss í gær eftir að farþegi um borð kom auga á skiptilykil sem var fastur á milli tveggja flapsa á væng vélarinnar.
Vélin var á leið til Kaupmannahafnar og var aðeins nokkrar mínútur í flugtak þegar 25 ára glöggur farþegi kom auga
á skiptilykilinn og lét hann áhöfn vita sem gerði flugmönnunum viðvart sem snéru vélinni við að flugstöðinni svo hægt
væri að fjarlægja verkfærið.
„Ég sá að það var eitthvað furðulegt þarna á vængnum sem átti ekki að vera þarna og áttaði mig á því að þetta
var skiptilykill“, segir farþeginn en um klukkustund síðar var vélin tilbúin og fór í loftið til Kaupmannahafnar.
Það var glöggur farþegi sem kom auga á torkennilegan hlut á vængnum og lét áhöfn vita
Í yfirlýsingu kemur fram að sennilega hefði skiptilykillinn farið af vængnum í flugtaki en hann hefði skapað mikla hættu aðskoðahlutur á flugbrautinni fyrir næstu vélar.
„Skiptilykillinn gæti hafa ollið stórslysi á flugbrautinni líkt og gerðist er Concorde-þotan fórst í París árið 2000“, segir
einn flugsérfræðingur í grein hjá svissneskum fjölmiðli.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.