flugfréttir
Þróa lendingarbúnað fyrir þyrlur til að lenda á ójöfnu
Með þessum lendignarbúnaði getur þyrla lent á ójöfnu yfirlagi
Þyrlur þurfa að hafa sléttan flöt til að geta lent eða hafið sig á loft en það gæti breyst í framtíðinni þar sem þyrlur gætu komið til með að geta lent á ójöfnu landslagi, brekku eða í óbyggðum.
Rannsóknarverkefnanefnd bandaríska varnarmálaráðuneytisins (DARPA), sem sér um sérhæfðar
tæknilegar rannsóknir fyrir bandaríska herinn, vinnur nú að því að þróa þyrlu með
vélfæranlegum lendingarbúnaði.
Með fjórum lendingar„fótum“ í stað hefðbundins lendingarbúnað getur þyrlan lent eða hafið sig á loftið
í brekku með allt að 20 gráðu halla.
Lendingafæturnir koma með skynjurum sem reikna út landslagið rétt áður en þyrlan lendir og stilla sig
af svo þyrlan sjálf geti verið lárétt þrátt fyrir brekku eða hrjóstrugt landsvæði.
Þyrlan gæti einnig lent á svæði þar sem náttúruhamfarir hafa átt sér stað og verið því nálægt
björgunaraðgerum í stað þess að þurfa að lenda á sléttlendi langt í burtu og þá gæti þyrlan einnig
lent á skipi í slæmum sjó.
Lendingarbúnaðurinn, sem verið er að þróa, er fimm sinnum líklegri til að koma í veg fyrir skemmdir á þyrlu í harkalegri lendingu þar sem búnaðurinn skynjar nokkrum sinnum á sekúndu yfirborðið sem verið
er að lenda á.
Prófanir á tilraunarmódeli hófust í september sl. haust í tækniskólanum í Georgíu í Bandaríkjunum
og er verið að þróa búnaðinn enn frekar.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.