flugfréttir

Flugmaður rekinn fyrir að sýna beint úr stjórnklefanum á Netinu

1. apríl 2016

|

Frétt skrifuð kl. 11:00

Skjáskot sem náðist af flugmanninum er hann streymaði beinni útsendingu frá stjórnklefanum

Flugmaður hjá Air China hefur verið leystur frá störfum eftir að hann streymaði beinni útsendingu á Netinu með spjaldtölvufrá stjórnklefa á farþegaþotu af gerðinni Airbus A330 sem hann flaug.

Atvikið átti sér stað í gær á flugvellinum í Peking þegar aðstoðarflugmaðurinn fór að taka myndir og setja á kínverska samfélagsmiðilinn Weibo.com.

Því næst byrjaði hann að streyma beinni útsendingu gegnum iPad spjaldtölvu sína þar sem hann sýndi frá því undirbúningi fyrir brottför.

Margir netverjar skildu eftir ummæli sín undir þær myndir sem flugmaðurinn setti inn á Weibo jafnóðum en margir gagnrýndu hann fyrir að hunsa öryggisreglur í fluginu og hafa ekki hugann og einbeitinguna við störf sín og hvöttu flugfélagið til þess að reka hann.

„Flugstjórar eru svalir þegar þeir eru að fljúga og sinna vinnunni - ekki þegar þeir eru að þykjast vera svalir“, skrifaði einn netverjinn í ummælum.

Nokkrir netverjar hafa greint frá því að flugmaðurinn, sem setti inn myndir í beinni á Weibo, hafi nefnt það að hann væri að fljúga fyrir Air China og hafi hann verið að undirbúa flug til Rómar en flugmaðurinn hefur eytt öllu út sem hann setti á Netið í gær.

Air China sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem staðfest er að umræddur flugmaður hafi verið nýráðinn til starfa sem aðstoðarflugmaður og taki flugfélagið gjörðum hans mjög alvarlega þar sem hann átti að vera með fulla einbeitingu við undirbúning fyrir brottför.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga