flugfréttir
Starfsmaður FedEx sofnaði í fraktþotu og vaknaði á leið til Texas
- Var úrvinda af þreytu og ákvað aðeins að leggja sig inni í fraktinni
Airbus A310 fraktflugvél FedEx í flugtaki í Memphis
Starfsmaður hjá FedEx varð fyrir þeirri undarlegri lífsreynslu í gær að hann flaug óvart frá Memphis í Tennessee til Lubbock í Texas eftir að hann tók sér smá blund um borð í Airbus A310 fraktþotu félagsins með þeim afleiðingum að hann steinsofnaði.
Þegar starfsmaðurinn vaknaði var vélin komin langleiðina áleiðis til Texas. Hann bankaði á dyrnar á flugstjórarnklefanum en flugmennirnir
ákváðu af öryggisástæðum að opna ekki dyrnar og létu þess í stað flugvöllinn í Lubbock vita að það væri „einhver“
aftur í fraktinni.
Skömmu áður en vélin lenti höfðu flugmennirnir þó náð að tali af manninum og þegar í ljós kom að ekki lék neinn
vafi á því að þarna var starfsmaður FedEx á ferðinni, opnuðu þeir dyrnar og hleyptu honum inn og sat hann á prikinu („jump seat“)
restina af fluginu.
Lögregla og flugvallaryfirvöld biðu vélarinnar og var starfsmaðurinn tekinn í yfirheyrslur en honum var sleppt eftir skamma stund án frekari eftirmála.
Strafsmaðurinn vaknaði þegar vélin var komin langleiðina til
Lubbock í Texas
Starfsmaðurinn starfar sem hlaðmaður hjá FedEx en hann sagði í yfirheyrslum að hann hefði verið
úrvinda af þreytu þar sem hann er í tveimur vinnum og sá ekki annan kost en að leggja sig í smástund inni í vélinni þar sem hann var gjörsamlega að leka niður af þreytu.
Verið er að rannsaka atvikið og stjórn flugvallanna í Memphis og Lubbock hafa gefið út yfirlýsingu þar sem kemur
m.a. fram að aldrei hafi nein hætta verið á ferðum gagnvart áhöfn eða þeirri frakt sem var um borð og þá varð aldrei nein röskun á flugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.