flugfréttir

Vildi frekar hafa flugfreyjuna sér við hlið heldur en aðstoðarflugmanninn

- Annað skiptið sem SpiceJet rekur flugmenn vegna hátternis

23. apríl 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:08

Tvisvar á einum mánuði hefur SpiceJet þurft að reka flugmenn vegna óviðeigandi hátternis

Indverskum flugstjóra hjá SpiceJet hefur verið sagt upp störfum í kjölfar atviks þar sem hann bað aðstoðarflugmanninn um að yfirgefa stjórnklefann til að leyfa honum að vera einum í stjórnklefanum með flugfreyju einni sem settist honum við hlið í sætið hægra megin.

Atvikið átti sér stað um borð í Boeing 737 vél félagsins þann 28. febrúar í millilandaflugi frá Kalkútta til Bangkok í Tælandi en flugstjórinn lék aftur sama leik í fluginu til baka þar sem hann bað hinn flugmanninn um að fara svo flugfreyjan gæti verið hjá honum.

Sagt er að flugfreyjan hafi verið í stjórnklefanum í drjúgan hluta ferðarinnar en búið er að tilkynna atvikið formlega til indverskra flugmálayfirvalda sem hafa hafið rannsókn á því.

Fljótlega eftir að upp komst um málið ákvað stjórn SpiceJet að reka flugstjórann tafarlaust og er málið litið mjög alvarlegum augum.

Ekki er mánuður síðan að SpiceJet sagði upp tveimur flugmönnum í kjölfar birtingu myndbands sem sýnir hvar flugliðar dansa um borð í farþegarými vélarinnar við vinsælt Bollywood-lag á meðan flugmennirnir horfa á og taka myndband á símana.

Skjáskot úr myndband sem birtist þegar áhöfnin fór að dansa sem varð til þess að flugmennirnir voru reknir







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga