flugfréttir

Nýjar Airbus A320neo þotur án hreyfla hrannast upp á geymslusvæði

27. apríl 2016

|

Frétt skrifuð kl. 20:13

Talið er að 30 Airbus A320neo vélar séu komnar í geymslu við verksmiðjur Airbus

Fyrir utan verksmiðjur Airbus í Toulouse og Hamborg hrúgast núna upp nýsmíðaðar Airbus A320neo vélar með enga hreyfla en ástæða þess er vandamál hjá Pratt & Whitney hreyflaframleiðandanum.

Frá því fyrir áramót hefur verið vandamál með hugbúnað í PW1100G hreyflinum sem hefur tafið afhendingar en Airbus segir að allt líti út fyrir að búið verða að finna lausn á vandamálinu um mitt sumarið.

Þeir sem eru kunnugir málinu segja að það séu allt að 30 Airbus A320neo sem búið er að koma fyrir á flugvallarsvæðinu í Toulouse og í Hamborg án hreyfla og fjöldi þeirra eigi sennilega eftir að fara hækkandi.

Airbus A320neo vélar fyrir IndiGo fyrir utan verksmiðjurnar í Toulouse

Vandamálið hefur valdið því að flugfélög hafa neitað að taka við vélunum með PW1100G hreyflinum fyrr en búið sé að finna lausn á því en sum flugfélög hafa pantað Airbus A320neo vélarnar með LEAP-1A hreyflinum en ekki er enn komið að því að afhenda þær vélar sem koma með þeirri hreyflategund.

Indverska flugfélagið IndiGo hefur tekið við þremur þrjár Airbus A320neo vélum og Lufthansa og hefur tekið við tveimur en flugfélagið þýska ætlar að bíða með að fá fleiri þar til lausn hefur fundist á vandamálinu.

Munu smíða um 4 flugvélar á mánuði í stað átta

Airbus hefur dregið úr framleiðsluhraðanum á nýju Airbus A320neo vélinni tímabundið fram til júlí á meðan hreyflaframleiðandinn vinnur að því að laga vandamálið.

Airbus A320neo vélarnar sem Qatar Airways neitaði að taka við

Airbus byrjaði árið 2016 á því að framleiða átta Airbus A320neo vélar á mánuði en núna er búið að minnka afköstin niður í 4.5 vél á mánuði.

Airbus áætlar að hægt verið að framleiða fleiri vélar og auka framleiðsluhraðann upp í 10 flugvélar á mánuði júlí en eftir það mun hraðinn aukast ört upp í sextán Airbus A320neo vélar á mánuði í október.

Þá munu afköstin fara upp í 20 vélar á mánuði í desember og 26 vélar í mars árið 2017 sem er í samræmi við áætlanir Airbus um að smíða fimmtíu Airbus A320 vélar sem samanstendur bæði af A320ceo og A320neo vélum.

Fleiri Airbus A320neo vélar í geymslu









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga