flugfréttir
Ellefu ára stúlka laumaði sér ein í flug frá Moskvu til Pétursborgar
Á upptöku úr öryggismyndavél á Vnukovo-flugvellinum í Moskvu má sjá var stúlkan nær að fara í samfloti með stórri fjölskyldu í gegn um vegabréfaeftirlit
Ellefu ára stúlka náði að snigla sér um borð í farþegaþotu í Rússlandi og flaug með vélinni frá Moskvu til Pétursborgar án þess að hafa bókað flug og var því með ekkert brottfararspjald eða nein skilríki.
Stúlkan fór um borð í flugvél frá Rossiya Airlines á Vnukovo-flugvellinum og komst hún fram hjá öryggiseftirliti, vopnaleit og starfsmönnum flugfélagsins.
Engin spurði stúlkuna um nein gögn þar sem hún hélt sig mjög nálægt stórri fjölskyldu og er talið að starfsmenn flugfélagsins
og flugfélagsins hafi haldið að hún væri í samfloti með þeim.
Ekki komst upp um ævintýri stúlkunnar fyrr en hún var lent í St. Petersburg en stúlkan sagði að hún hefði aldrei flogið
áður með flugvél og var það draumur hennar að fara í flug og skoða St. Petersburg.
Stúlkan lenti í St. Petersburg en eftir smá dvöl á Pulkovo-flugvellinum hringdu foreldrar hennar í farsímann sem hún
var með og höfðu þeir vitaskuld miklar áhyggjur af henni þar sem hún kom ekki heim eftir skólann.
Upptaka úr öryggismyndavél:
Foreldrarnir áttu ekki til aukatekið orð þegar hún sagði þeim að hún hefði flogið til St. Petersburg en þeir hringdu
í starfsfólk Pulkovo-flugvallarins sem náðu að staðsetja hana og voru félagsstarfsmenn kallaðir til sem fylgdu henni
um borð í næsta flug til baka til Moskvu.
Rússnesk yfirvöld reyna nú að komast að því hvernig stúlkunni tókst að fara um borð í flug með ekkert í höndunum og
hefur öryggi Vnukovo-flugvallarins verið hert í kjölfar atviksins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.