flugfréttir
Flugvél frá Delta ók í veg fyrir aðra Delta-vél í flugtaki
McDonnell Douglas MD-90 vél Delta Air Lines á flugvellinum í Atlanta
Farþegaþota frá Delta Air Lines af gerðinni McDonnell Douglas MD-90 þurfti að hætta við flugtak á Hartsfield-Jackson flugvellinum í Atlanta sl. miðvikudag eftir að önnur farþegaþota frá Delta ók í veg fyrir hana eftir lendingu.
Vélin, sem var í flugtaksbruni, var á leið til Miami en 20 sekúndum áður en vélin
fékk leyfi til að fara í flugtak hafði önnur vél frá Delta Air Lines, sem var nýlent
eftir flug frá Miami, fengið leyfi til að þvera flugbrautina.
22 sekúndum síðar afturkallaði flugturninn flugtaksleyfið sem varð til þess að flugmennirnir
snarhemluðu á 120 hnúta hraða sem samsvarar 222 km/klst.
Flugumferðarstjórinn bað flugmennina á vélinni sem var að þvera brautina
afsökunar á því að hafa gert mistök en hann var leystur af störfum í kjölfar
atviksins tímabundið og annar fengin á vakt í hans stað.
Kæla þurfti bremsurnar á vélinni sem hætti við flugtakið og var vélin skoðuð en
fékk að fara í loftið skömmu síðar og lenti hún í Miami með eins og hálfs tíma seinkun.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa hafið rannsókn á atvikinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.