flugfréttir
SriLankan vill hætta við pöntun sína í Airbus A350
SriLankan Airlines leitast nú eftir því við Airbus að fá að hætta við þær pantanir sem félagið gerði í nýju Airbus A350 vélarnar.
SriLankan pantaði árið 2013 fjórar Airbus A350-900 þotur og sex Airbus 330 vélar með samningi upp á 284
milljarða króna en SriLankan reynir nú að draga úr tapreksri félagsins.
Samkvæmt fréttamiðlum í Sri Lanka þá reynir Ranil Wickremesinghe, forsetisráðherra landsins, að hætta við pöntunina
en því fylgir afpöntunarkostnaður upp á 6.1 milljarð króna.
Ríkisstjórn Sri Lanka hefur komist að meiriháttar spillingu innan stjórnar flugfélagsins sem hleypur á milljörðum króna
sem er meðal annars orsök þess að taprekstur félagsins nemur í dag um 382 milljörðum króna.
Fjármálaráðherra Sri Lanka segir að ríkisstjórnin muni halda áfram að veita fé til SriLankan Airlines til að halda
flugfélaginu gangandi en þó ekki lengur en í sex mánuði en verið er að skoða aðrar fjármögnunarleiðir
og m.a. kemur til greina að bjóða fjárfestum að kaupa hlut í félaginu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.