flugfréttir

Keflavíkurflugvöllur kveður 02/20 og tekur í notkun 01/19

- Flugbraut fær „nýtt nafn“ vegna breytinga á segulskauti jarðar

29. apríl 2016

|

Frétt skrifuð kl. 14:35

Ný flugbrautarskilti voru sett upp á Keflavíkurflugvelli

Það eru ýmsar breytingar sem hafa átt sér stað á Keflavíkurflugvelli sl. mánuði í kjölfar aukningar á farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar en í fyrradag var þó gerð ein áhugaverð breyting á flugvellinum sem kemur að vísu farþegaaukningu ekkert við og flestir vita ekki af nema þeir sem starfa í fluginu.

Önnur flugbrautin á Keflavíkurflugvelli hefur fengið „nýtt nafn“ ef svo má segja en brautin 02/20 var endurskírð á miðnætti aðfaranótt gærdagsins (28. apríl) og klukkan 00:01 breyttist hún í 01/19 en um er að ræða norður-suðurbrautina.

01/19 brautin á Reykjavíkurflugvelli hefur því fengið „alnafna“ í Keflavík þótt halli hennar sé eiliítið meira til vesturs á meðan 01/19 liggur meira til norðurs ef litið er á þær á korti.

Ástæða þess að breytingin var gerð er sú að allar flugbrautir hafa númer er vísar í þá stefnu sem þær vísa til en miðað er við þá átt sem reiknast út frá segulstefnu.

Nýtt skilti merkt 01/19 brautinni en fyrr í vikunni stóð á því 02/20   / Ljósmynd: Emil Georgsson

Segulstefnu er hægt að finna með því að bæta misvísun við réttvísandi stefnu. Misvísun er breytileg í heiminum þar sem segulpólarnir eru á hreyfingu en á Íslandi er „vestan-misvísun“.

„Misvísun hér fer lækkandi og þess vegna lækkar segulstefnan einnig en lækkunin hér er um 0.3° á ári en nú er svo komið að númer brautar endurspeglar ekki segulstefnuna og þarf því að breyta númerum. Braut 01 þýðir að segulstefnan er nálægt 010° (+-5°)“, segir sérfræðingur hjá Isavia.

Breytingin gæti tekið nokkra daga fyrir flugvallarstarfsmenn að vengjast en um helgina verður búið að uppfæra gagnagrunna í flugtölvum (Flight Management System) um borð í Icelandair-vélunum.

Þá á eftir að mála ný númer í brautarendana og fjarlægja 02 og 20 en það verður gert í sumar þegar skipt verður um yfirlag brautarinnar sem er hlut af þeim framkvæmdum sem munu fara fram á næstu mánuðum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga